Hættu að slá sömu tölu
inn tvisvar.
Checkout talar við bókhaldið þitt, færsluhirðinn þinn og tax free kerfið þitt. Uppgjörið fer sína leið sjálft þegar þú staðfestir það.
Allar tengingar fylgja kassaverðinu. Engin þeirra kostar aukalega.
Talar við kerfin sem þú ert þegar með.
8 tengingar í þremur flokkum: bókhaldið sem tekur við uppgjörinu, færsluhirðarnir sem posinn þinn talar við og tax free kerfin sem prenta skjalið á kassanum. Allar fylgja kassaverðinu.
Bókhaldið fær uppgjörið sjálft.
Dagsuppgjörið bókast sjálft með sundurliðun á VSK. Enginn slær sömu tölu inn í annað kerfi. Sjá uppgjörið
Upphæðin fer beint í posann.
Upphæðin fer beint í posann og færslan kemur til baka á söluna. Kortanúmer fara aldrei í gegnum Checkout. Posinn þinn heldur sínum samningi
- Verifone CentralPOS Cloud tengingar og færsluupplýsingar kortagreiðslna.
- StraumurKortafærslur og uppgjör frá Straumi.
- RapydKortafærslur og uppgjör frá Rapyd.
- TeyaKortafærslur og uppgjör frá Teya.
Tax free prentast á kassanum.
Tax free skjalið er prentað á kassanum og endurgreiðslan rakin á sölunni sem hún tilheyrir.
- Global BlueTax free skjöl prentuð á kassanum og endurgreiðsla rakin.
- Iceland Tax FreevæntanlegtTax free skjöl og endurgreiðsla í gegnum Iceland Tax Free.
Uppgjörið sem sendir sig sjálft.
Þegar dagsuppgjörið stemmir fer það í bókhaldið án þess að nokkur opni annað kerfi. Þetta er Bókhald í stjórnborðinu eins og það stendur: uppgjörin, sömu dálkar og hnappurinn sem sendir þau.
Fjögur skref frá lokun að bókhaldi.
Það eina sem þú gerir er að loka deginum og staðfesta uppgjörið; afgangurinn gerist á milli kassans, stjórnborðsins og bókhaldsins.
- 1Deginum lokað á kassanumZ-uppgjörið er einn hnappur við vaktarlok.
- 2Skúffan talinMismunurinn er skráður með skýringu og stendur með uppgjörinu.
- 3Stemmt við færsluhirðinnKortafærslurnar eru bornar saman við það sem posinn tók.
- 4Sent í bókhaldiðVSK skipt á þrepin og ein færsla fer á bókhaldskerfið sem þú valdir.
Það sem er spurt um tengingarnar.
Hvað þær kosta, hvað þarf til að tengja og hvað gerist þegar lykill rennur út.
Kostar tenging aukalega?
Hvað þarf ég til að tengja bókhaldið?
Hvað gerist ef lykillinn rennur út?
Er hægt að tengja kerfi sem er ekki á listanum?
Annað í vörunni.
Tengingarnar fylgja hverjum kassa og kosta ekkert aukalega.
Tengdu bókhaldið á fimm mínútum
Þú þarft ekki kerfisstjóra til að byrja að selja — uppsetningin tekur korter.