Hvernig getum við hjálpað?

22 leiðbeiningar um kerfið eins og það er notað á vakt, frá fyrstu sölu að uppsögn.

Spurt og svarað.

Það sem er spurt um áður en kerfið er tekið í notkun.

Hvað gerist ef netið dettur út?

Kassinn heldur áfram að afgreiða og geymir sölurnar hjá sér. Um leið og sambandið kemur aftur skila þær sér í stjórnborðið í réttri röð.

Fylgir posinn með?

Nei, og spjaldtölvan ekki heldur — hvort tveggja átt þú sjálf. Checkout talar við posann sem þú ert með frá Straumi, Teya, Rapyd eða Verifone, og ef þú átt engan aðstoðum við þig við að velja. Skúffu, kvittanaprentara og strikamerkjalesara seljum við hins vegar þeim sem vantar þá.

Get ég flutt vörulistann minn inn?

Já, úr CSV eða Excel. Við aðstoðum við fyrsta innflutninginn og förum yfir hann með þér áður en hann er staðfestur.

Hvað er kassi?

Kassi er ein spjaldtölva sem afgreiðir, með posanum sem stendur við hana. Þú borgar fyrir þá kassa sem eru í notkun, ekki fyrir verslanir, notendur eða vörur — þau eru ótakmörkuð.

Kostar það aukalega að vera með margar verslanir?

Nei. Verslun kostar ekkert; kassarnir sem standa í henni gera það. Þrjár verslanir með einn kassa hver kosta það sama og ein verslun með þrjá.

Er stofngjald eða binding?

Hvorugt. Þú getur sagt upp með mánaðar fyrirvara og fengið gögnin þín út í skrá sem má lesa annars staðar.

Fannstu ekki svarið?

Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16. Sá sem svarar hefur staðið við kassa.