Stimpilklukka, vaktir og þjórfé
Hvernig vakt er opnuð og lokað, hvað stjórnborðið telur og hvernig þjórfé skiptist.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 11. september 2026
Vaktin
Starfsmaður stimplar sig inn á kassanum með sínu PIN og út í lok vaktar. Vaktin telur unnar stundir og tengir sölur dagsins við þann sem afgreiddi.
Vakt sem gleymdist að loka stendur opin í stjórnborðinu og má loka þar með réttum tíma. Opnar vaktir eru taldar sérstaklega í yfirlitinu einmitt af þeirri ástæðu.
Þjórfé
Þjórfé er stillt á verslunina: hvort um það er spurt, hvaða upphæðir standa til boða og hvort það er reiknað af upphæð fyrir eða eftir VSK. Það sem safnast stendur með vaktinni en ekki með sölunni, svo það má gera upp við þann sem vann.
- Þjórfé á kort kemur inn með færslunni og stendur sér í uppgjörinu
- Þjórfé í reiðufé er talið með skúffunni og skráð sérstaklega
- Yfirlit yfir tímabil sýnir hvað safnaðist á hverja vakt
Tímar út úr kerfinu
Vaktir tímabilsins má sækja sem skrá með starfsmanni, dagsetningu, tímum og þjórfé. Hún opnast í töflureikni og fer þaðan í launavinnsluna.
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.