Frá nýskráningu að fyrstu sölu

Sex skref sem taka korter: fyrirtækið, verslunin, kassinn, posinn, vörurnar og fólkið.

2 mín. lesturSíðast yfirfarið 2. september 2026

Það sem þarf að vera við höndina

  • Kennitala fyrirtækisins og VSK-númer
  • Spjaldtölva á netinu — iPad eða Android, ein á hvern kassa
  • Posi frá Straumi, Teya, Rapyd eða Verifone
  • Vörulistinn, ef hann er til í Excel eða CSV
  • Netfang eða kennitala þeirra sem eiga að komast í stjórnborðið

Ekkert af þessu þarf að vera tilbúið áður en þú stofnar aðgang. Þú kemst inn í stjórnborðið strax og getur fyllt í eyðurnar í þeirri röð sem hentar; gátlistinn á yfirlitinu man hvað er eftir.

Skrefin sex

  1. Stofnaðu aðgangNýskráningin spyr um kennitölu fyrirtækisins, nafn og netfang. Þú ert kominn inn í stjórnborðið um leið og hún er staðfest.
  2. Fylltu út fyrirtækiðStillingar → Almennt ber nafnið, kennitöluna, heimilisfangið og VSK-númerið. Þetta er það sem stendur á kvittuninni og fylgir sölunum í bókhaldið, svo það borgar sig að klára það fyrst.
  3. Stofnaðu versluninaVerslun ber heiti, símanúmer, svæði og þá kassa sem standa í henni. Verslun kostar ekkert — það eru kassarnir sem eru rukkaðir — svo þú mátt stofna eins margar og reksturinn er í raun og veru.
  4. Bættu við kassa og paraðu spjaldtölvunaHver kassi fær pörunarkóða sem þú slærð inn í Checkout á tækinu sjálfu. Kóðinn gildir í klukkustund.
  5. Tengdu posannKassinn talar við posann sem þú átt fyrir. Posinn og kassinn þurfa að vera á sama neti.
  6. Skráðu vörurnar og bjóddu fólkinuVörulistinn má koma úr skrá eða vera sleginn inn. Starfsfólk fær aðgang á kennitölu og PIN á kassann.

Þegar þú ert tilbúin að selja

Fyrsta salan er besta prófið: sláðu inn ódýrustu vöruna, greiddu hana með korti og endurgreiddu hana svo strax aftur. Þá hefurðu séð alla keðjuna — kassann, posann, kvittunina og sölulistann í stjórnborðinu — áður en fyrsti viðskiptavinurinn stendur við borðið.

Prófsalan situr í sölusögunni eins og hver önnur sala. Endurgreiddu hana frekar en að reyna að fela hana; uppgjörið á að vera satt frá fyrsta degi.

Gekk þetta ekki upp?

Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.