Skrá vöru, verð og VSK
Reitirnir sem skipta máli, hvernig verð eru skrifuð og hvað kemst á kassaskjáinn.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 19. ágúst 2026
Reitirnir
- Heiti — það sem stendur á skjánum og á kvittuninni
- Verð í heilum krónum, með VSK
- VSK-þrep — almennt þrep eða lægra þrep, eftir því hvað er selt
- Vöruflokkur, sem ræður bæði röðun á kassanum og sundurliðun í bókhaldinu
- Strikamerki, fyrir það sem er skannað
- Birgðir, fyrir það sem er talið
Vöruflokkurinn er ekki skraut
Flokkurinn ræður hvar varan liggur á kassaskjánum og hvernig salan sundurliðast í uppgjörinu og bókhaldinu. Vörulisti þar sem allt er í flokknum „Annað“ skilar uppgjöri sem segir að allt hafi selst jafnt.
Hafðu flokkana fáa og lýsandi. Sá sem er nýr á kassanum á að finna vöruna án þess að leita, og sá sem les mánaðaruppgjörið á að sjá hvað dró vagninn.
Vörur sem eru ekki með fast verð
Vöru sem er seld eftir vigt eða eftir tíma má skrá með opnu verði; kassinn spyr þá um upphæðina við afgreiðslu. Þjónusta sem er seld í tímum er skráð eins og hver önnur vara — Checkout heldur ekki bókunarkerfi, en tíminn er seldur, sundurliðaður og gerður upp eins og vara.
Lestu næst
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.