Bæta við starfsmanni og gefa PIN
Kennitalan hleypir fólki inn í stjórnborðið, PIN hleypir því á kassann — og hvorugt er það sama.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 11. september 2026
Tveir lyklar, tveir staðir
Starfsmaður fær aðgang að stjórnborðinu á kennitölu og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Á kassann kemst hann með fjögurra stafa PIN — kassinn stendur á borði með viðskiptavin fyrir framan sig og rafræn skilríki eiga ekki heima í þeirri röð.
Hvort tveggja er stillt á sama stað: Starfsfólk í stjórnborðinu.
Að bæta við manneskju
- Sláðu inn kennitölu og símanúmerNafnið kemur með kennitölunni.
- Veldu hlutverkHlutverkið ræður hvað hún má, bæði á kassanum og í stjórnborðinu.
- Veldu verslanirnar sem hún vinnur íSá sem vinnur í einni búð á ekki að sjá uppgjör hinna.
- Gefðu PIN á kassannÞað má senda í SMS um leið, eða lesa upp fyrir viðkomandi.
PIN sem gleymist eða spyrst út
Endurstilltu PIN í stjórnborðinu; það tekur gildi strax á öllum kössum. Gamla PIN-ið hættir að virka í sömu andrá.
Starfsmaður sem hættir er gerður óvirkur en ekki eytt: sölurnar hans, vaktirnar og uppgjörin sem hann lokaði standa áfram undir nafni hans. Óvirkur starfsmaður kemst hvorki á kassann né í stjórnborðið.
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.