Vörugerðir og valkostir
Hvenær vara á að vera einn hnappur með valkostum og hvenær hún á að vera margar vörur.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 26. ágúst 2026
Vörugerðin ræður hvað kassinn spyr um
Vara sem er til í stærðum, bragði eða lit er ein vara með valkostum en ekki fimm vörur með svipuð heiti. Kassinn spyr þá einnar spurningar við afgreiðslu — „hvaða stærð?“ — í stað þess að bjóða fimm hnappa sem líta eins út.
Sölusagan heldur svarinu: þú sérð hversu margir tóku stóran og hversu margir lítinn, án þess að vörulistinn tvöfaldist.
Valkostahópur er hlutverk
Hópurinn ber það sem hann spyr um — „Stærð“, „Mjólk“, „Sósa“ — og valkostirnir eru svörin. Hópur má vera skyldusvar eða valfrjáls, og valkostur má bera verðbreytingu: hafrmjólk sem kostar hundraðkall til viðbótar er valkostur með verði, ekki sér vara.
- Skyldusvar — kassinn kemst ekki áfram fyrr en er valið
- Valfrjálst — afgreiðslan sleppir því sem gestur nefndi ekki
- Verðbreyting á valkost, plús eða mínus
Hvenær á vara að vera sér vara
Þegar birgðirnar eru taldar sitt í hvoru lagi. Rauður bolur í stærð M er ekki sami hluturinn í hillunni og blár í L, og lager sem telur þá saman segir þér aldrei hvað vantar. Þá eru það tvær vörur — eða vara með valkostum sem hver ber sína birgðastöðu.
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.