Verslanir og kassar: hvernig þeir hanga saman
Hvað telst verslun, hvað telst kassi og hvað fylgir hvoru — heiti, kvittanir, birgðir og uppgjör.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 28. ágúst 2026
Verslun er staður, kassi er tæki
Verslun er staðurinn: heimilisfang, opnunartími, birgðir og eitt dagsuppgjör. Kassi er eitt afgreiðslutæki inni í versluninni — venjulega ein spjaldtölva með einum posa.
Verslun kostar ekkert. Kassinn kostar 20.000 kr. á mánuði án VSK, og þrjár verslanir með einn kassa hver kosta því það sama og ein verslun með þrjá.
Hvað fylgir versluninni
- Birgðastaðan — hver verslun telur sínar vörur
- Dagsuppgjörið og skúffutalningin
- Kvittanatextinn, þjórfé og greiðslumátar
- Borðahald, þar sem það á við
- Það sem starfsfólkið hefur aðgang að
Hvað fylgir kassanum
- Heiti sem stendur á kvittun og í uppgjöri — „Kassi 1“ segir minna en „Barinn“
- Posinn eða posarnir sem hann talar við
- Sölurnar sem voru slegnar inn á honum
- Gjaldið á reikningnum
Veldu heiti sem sá sem les uppgjörið þekkir. Mismunur í skúffunni er spurning um hvaða borð, ekki um hvaða raðnúmer.
Lestu næst
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.