Tengja bókhaldið við Checkout
Hvað þarf til að tengja dk, Payday eða Reglu, hvað færist sjálfkrafa og hvað gerist ef lykillinn rennur út.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 9. september 2026
Það sem þarf
- API-lykil úr bókhaldskerfinu
- Lykilinn í bókhaldinu sem sölur eiga að bókast á
- Aðgang að Stillingum í Checkout
Stjórnborðið sýnir hvar hvort tveggja er að finna í hverju kerfi fyrir sig, skref fyrir skref. Tengingin kostar ekkert aukalega — allar tengingar fylgja kassaverðinu og það er engin leið til að kaupa sem opnar þær.
Tengingin
- Opnaðu Stillingar → Tengingar
- Veldu bókhaldskerfið þitt
- Límdu inn API-lykilinn
- Veldu lyklana sem bókað er áSölutekjur, VSK-þrep, kortafærslur og reiðufé. Þetta er eina skrefið sem er þess virði að taka með bókaranum.
- Prófaðu tengingunaCheckout sendir eitt uppgjör og sýnir þér hvernig það lendir hinum megin.
Eftir tenginguna
Dagsuppgjörið fer sjálfkrafa yfir þegar því er lokað: sundurliðað eftir VSK-þrepum og greiðslumátum, ein færsla á dag á hverja verslun. Þú sérð stöðuna á hverri sendingu í stjórnborðinu og getur sent hana aftur ef bókhaldið hafnaði henni.
Stjórnborðið fylgist með gildistíma lykilsins og lætur vita áður en hann rennur út — ekki eftir að færslur hætta að skila sér.
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.