Strikamerki, birgðir og viðvaranir
Hvernig strikamerki eru skráð, hvað telst frá birgðum og hvenær stjórnborðið lætur vita.
1 mín. lesturSíðast yfirfarið 26. ágúst 2026
Strikamerkið
Strikamerki er eitt á hverja vöru og verður að vera einstakt. Skanni sem finnur tvær vörur með sama merki getur ekki valið á milli, svo Checkout leyfir aðeins eitt.
Strikamerkjalesari er venjulegt lyklaborðstæki: hann tengist spjaldtölvunni og skilar merkinu eins og það hefði verið slegið inn. Ekkert þarf að setja upp á kassanum.
Birgðir sem telja sig sjálfar
Sala dregur frá birgðum um leið og henni lýkur, skil leggja aftur við og hver verslun telur sínar eigin vörur. Birgðastaða er valkvæð á hverja vöru — kaffibolli sem er hellt upp á er ekki talinn, en kaffipokinn í hillunni er það.
- Sala dregur frá þeirri verslun sem seldi
- Skil bæta aftur við sömu verslun
- Talning leiðréttir stöðuna og skilur eftir spor um hver leiðrétti
- Vara án birgðastöðu er alltaf til
Viðvaranir
Hverri vöru má gefa lágmark. Fari staðan undir það lætur stjórnborðið vita — í yfirlitinu og í tilkynningum, ef kveikt er á birgðaviðvörunum í Stillingum.
Gekk þetta ekki upp?
Þjónustuverið er á Íslandi og svarar virka daga 8–18, laugardaga 10–16.